Heim arrow Klúbburinn arrow Njörður
Klúbburinn
Melvin Jones félagar
Nefndir
Viðburðir
Stofnfundur á Höfn 67
Hafa samband
Njörður
Fróðleikur
Lög Njarðar
Ævifélagar
Félagsmannasíða
Féla
Félagatal
Njörður   Prenta  Senda 
Lionsklúbburinn Njörður

MARKMIÐ LIONSKLÚBBA

  • AÐ vekja og efla anda skilnings meðal þjóða heims.
  • AÐ efla meginreglur heilbrigðs stjórnarfars og borgaralegra dyggða.
  • AÐ starfa af áhuga að aukinni velferð átthaganna á sviði félagsmála, menningar og almenns siðgæðis.
  • AÐ tengja klúbbana böndum vináttu, góðs félagsanda og gagnkvæms skilnings.
  • AÐ skapa vettvang fyrir frjálsar umræður um öll málefni, sem almenning varða, að því tilskyldu að ekki séu rædd meðal klúbbfélaga málefni stjórnmálaflokka né heldur sértrúarhópa.
  • AÐ hvetja félagslynda menn til að þjóna byggðarlagi sínu án persónulegs ávinnings og hvetja til dugnaðar og eflingar siðgæðis í viðskiptum, iðnaði, opinberri starfsemi og einkarekstri.
SIÐAREGLURNAR
  1. Líttu á starf þitt sem köllun. Leystu það svo af hendi að þú ávinnir þér traust.
  2. Leitastu við að gera starf þitt árangursríkt. Áskildu þér hæfilega umbun erfiðis þíns en reyndu ekki að hagnast með óréttumætum hætti.
  3. Láttu ekki ávinning þinn verða á annarra kostnað.
  4. Vertu hollur meðbræðrum þínum og heiðarlegur gagnvart sjálfum þér.
  5. Vertu aldrei eigingjarn. Leiki vafi á réttmæti gerða þinna, breyttu þá við náunga þinn eins og þú vilt að hann breyti við þig.
  6. Gerðu vináttu að markmiði, ekki leið að marki. Sönn vinátta krefst einskis í egin þágu og má aldrei vera háð gagnkvæmum greiða.
  7. Ræktu samfélagsskyldur þínar. Vertu hollur þegn þjóðar og sveitarfélags bæði í orði og verki.
  8. Hjálpaðu meðbræðrum þínum í vanda. Þeir sem um sárt eiga að binda þurfa hluttekningu, bágstaddir og minnimáttar stuðning.
  9. Vertu gætinn í gagnrýni og örlátur á viðurkenningu. Byggðu upp en rífðu ekki niður.
HAFIÐ FÉLAGATALIÐ ÁVALLT MEÐFERÐIS

Klúbburinn Lions Viðburðir Hafa samband
| Lionsklúbburinn Njörður | Sóltún 20 | 105 Reykjavík | gsm 615 1930 | Netfang: njordur@njordur.is | Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun